Tryggvi M. Baldvinsson
heimheimheimheim

Poetic Justice!

21.12.2007 - 22:13

peningar
Er þetta ekki full mikil kaldhæðni, svona fáeinum dögum eftir að ég geri gys að peningamönnunum í Chelsea.

Nú stoppar Chelsea!

12.12.2007 - 19:34

Var að reka augun í það að mínir menn hjá QPR hafi dregist gegn Chel$ea í 3. umferð FA bikarsins. Það var kominn tími til að lækka rostann í þeim bláklæddu og þeirra ögurstund í bikarnum er þegar ákveðin.

Tóndæmi

12.12.2007 - 19:30

Alltaf er eitthvað að bætast við, þó hægt fari. Nú eru komin nokkur tóndæmi inn á verkalistann, nánar tiltekið sönglögin mín,
en tóndæmin gætu reyndar horfið ef flytjendurnir eru þessu mótfallnir.
Ætla nú samt ekki að spyrja þá fyrr en ég er búinn að setja upp dæmi á flestöll sönglögin mín
svo að þau sjái og heyri betur hvernig þetta kemur til með að hljóma.

Verkalistinn allur að koma til

24.11.2007 - 0:52

Nú er loks að færast líf í þær gömlu glæður, sem lifðu af hrunið mikla þegar að netþjónninn sem vistaði gömlu síðuna fór í klessu.
Ég er byrjaður á að uppfæra verkalistann og það mun taka mig nokkuð langan tíma. Það verður semsagt hægt að smella á titla verkanna og krækja sér í frekari upplýsingar og jafnvel nótur o.þ.h.
Allt tekur þetta tíma og ég og þær milljónir lesenda verða að sýna nokkra biðlund enn.
kveðja
Tryggvi M.B.

©2007, Tryggvi M. Baldvinsson, tmbald(at)tmbald.com