Stutt
———
Tryggvi M. Baldvinsson (1965)
Stundaði nám í Tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík, þar sem tónsmíðakennarar hans voru þeir Atli Heimir Sveinsson og Þorsteinn Hauksson. Hélt að því námi loknu, (1987), til Vínarborgar þar sem hann nam tónsmíðar og kontrapunkt hjá Reinhold Portisch við Konservatoríum Vínarborgar (1992). Tryggvi er nú deildarstjóri tónfræðagreina við Tónlistarskólann í Reykjavík og kennari tónfræðagreina við tónlistardeild LHÍ, jafnframt sem hann sinnir tónsmíðum.
———
Miðlungs
———
Tryggvi M. Baldvinsson (1965)
Stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Jónasi Ingimundarsyni í píanóleik og við Tónfræðadeild sama skóla þar sem tónsmíðakennarar hans voru þeir Atli Heimir Sveinsson og Þorsteinn Hauksson. Hélt að því námi loknu, (1987), til Vínarborgar þar sem hann nam tónsmíðar og tónfræði með sérstakri áherslu á endurreisnarkontrapunkt hjá Reinhold Portisch við Konservatoríum Vínarborgar og lauk þaðan prófi árið 1992. Tryggvi hefur að námi loknu starfað við hina ýmsu tónlistarskóla. Nú síðast sem deildarstjóri tónfræðagreina við Tónlistarskólann í Reykjavík og kennari tónfræðagreina við tónlistardeild LHÍ. Hann stjórnaði einnig Lúðrasveit verkalýðsins á árunum 1996 – 2005. Tryggvi hefur einnig sinnt ýmsum félagsmálum í þágu tónskálda; var m.a. formaður Ung Nordisk Musik á Íslandi, sat í stjórn Tónskáldafélags Íslands og Íslenskrar Tónverkamiðstöðvar.
Verk Tryggva hafa verið flutt víða um heim og hefur hann hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín. Árið 2004 hlaut verk hans, Konsert fyrir klarinettu og blásarasveit, Íslensku Tónlistarverðlaunin sem sígilt tónverk ársins 2003.
———
Ítarlegt
———
Tryggvi M. Baldvinsson (1965)
Almennt nám:
-
1980 - 1984 Menntaskólinn við Sund - stúdentspróf
1977 - 1980 Laugalækjarskóli í Reykjavík
1971 - 1977 Laugarnesskóli í Reykjavík
Tónlistarnám:
-
1999 -2001 Tölvuver Tónlistarskóla Kópavogs
Nám í tölvutónlist undir handleiðslu Hilmars Þórðarsonar.
1987 - 1992 Konservatorium der Stadt Wien í Austurríki
Framhaldsnám í tónsmíðum og tónfræðum, með áherslu á kontrapunkti undir handleiðslu Prof. Reinhold Portisch. - Lokið með Diplomprófi í tónfræðum.
1984 - 1987 Tónlistarskólinn í Reykjavík
Nám í Tónfræðadeild, tónsmíðakennarar Atli Heimir Sveinsson og Þorsteinn Hauksson.
1980 - 1987 Tónlistarskólinn í Reykjavík
Nám í píanóleik hjá Jónasi Ingimundarsyni
1971 - 1980 Barnamúsíkskólinn / Tónmenntaskóli Reykjavíkur
Nám í píanóleik hjá Erlu Stefánsdóttur og túbuleik hjá Daða Einarssyni
Starfsferill:
-
2005 - Sumarnámskeið Tónlistarskólans í Reykjavík og Tónlistardeildar LHÍ.
2002 – Tónsmíðanámskeið fyrir börn við Tónlistarskóla Bessastaðahrepps
2001 – Kennari tónfræðagreina við tónlistardeild LHÍ
2001 – 2005 Aðkoma að frágangi á námskrá tónfræðigreina á framhaldsstigi
fyrir Menntamálaráðuneytið
2000 -2001 Umsjón með tónleikaskrám S.Í.
Hér er um að ræða rauða og græna áskriftarröð.
1998 - Deildarstjóri tónfræðagreina og tónfræðadeildar.
1997 - 2000 Stakir þættir um nýja tónlist í RÚV.
1996 - 2005 Stjórnandi Lúðrasveitar Verkalýðsins.
1998 Námskeið í nótnasetningu á tölvu á vegum Rafiðnaðarsambandsins.
1995 - 1997 Sumarnámskeið Tónlistarskólans í Reykjavík.
1994 - Sjálfstætt starfandi nótnasetjari.
1992 - Tónlistarskólinn í Reykjavík
Kennsla í hljómfræði I, II og III - kontrapunkti I, II og III - píanóbókmenntum II, og hljóðfærafræði,
Í Tónfræðadeild: Sónötuformið - undirstöður tónsmíða og tónsmíðar.
1992 - 1995 Tónlistarskóli FÍH
Kennsla í sígildri tónlistarsögu / hraðferð á einu ári
1992 - 1994 Nýji Tónlistarskólinn
Kennsla í sígildri tónlistarsögu
Félagsstörf:
-
2006 - Varaformaður skólanefndar Tónlistarskóla Álftaness.
2006 - Formaður knattspyrnudeildar UMFÁ
2003 – Í stjórn knattspyrnudeildar UMFÁ
2003 – 2007 Í verkefnavalsnefd Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem fulltrúi Tónskáldafélags Íslands.
2001 - Héraðsdómari í knattspyrnu hjá UMFÁ.
1998 - 2003 Í stjórn Íslenskrar tónverkamiðstöðvar.
1998 - 2000 Í stjórn Tónskáldafélags Íslands.
1996 – 2001 Fulltrúi BÍL í Menningarmálanefnd Reykjavíkur
1993 - 1998 Formaður Ung Nordisk Musik á Íslandi
Skipulagði og sá um hátíðina í Reykjavík 1997
————————————
Tryggvi M. Baldvinsson
Sviðholtsvör 9
225 Álftanesi
tmbald[at]tmbald.com
S:555-4126
GSM:861-4126
———————————–




